Arctic Spas EUrope

DEALER OF THE YEAR

2007, 2018-2023

Leggjum áherslu á góða þjónustu og höfum því unnið 6 ár í röð! 🎉

Teymið í Mexíkó að taka á móti verðlaunum fyrir árið 2023.

Fréttir í gegnum tíðina:

2024 - Verðlaunamet hjá Arctic Spas

"Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtæki hlýtur tvenn verðlaun frá Arctic Spas á sama árinu en Heitirpottar.is voru að vinna þessi verðlaun fimmta árið í röð. Þá hefur engin önnur verslun unnið verðlaunin jafn oft í 35 ára sögu Arctic Spas.

„Við klæddum okkur upp eins og Mexíkanar við verðlaunaafhendinguna, við mikinn fögnuð viðstaddra en 250 manns sóttu ráðstefnuna á þessu ári í Mexíkó,“ segir Kristján." - Viðskiptablaðið (2024).

Full frétt (vb.is)

2024 - Kristján hæstánægður með Mexíkóferð – „Við erum stoltir”

"Ferðin skilaði góðum árangri því Heitirpottar.is gjörsigruðu alla Evrópu. 

„Við vorum lang söluhæsta verslunin og einnig fengum við fyrstu verðlaun fyrir bestu þjónustuna í allri Evrópu, sem okkur þykir betri verðlaun. Þau verðlaun sýna að við erum bestir í þjónustu í allri Evrópu, en það er erfiðara að vinna þau verðlaun en að selja mest,“" - Ragna Gestsdóttir, DV (2024).

Full frétt (dv.is)

2023 - Íslendingar vilja heita potta

"Kristján Berg, eigandi Heitirpottar.is, segir að síðustu fjögur ár hafi öll verið metár í sölu á heitum pottum hjá fyrirtækinu. Þá hafi ferðaþjónustan haft mikið að segja." - Anton Brink, DV (2023).

Full frétt (dv.is)

2023 - Sala á rafmagnspottum hefur aldrei verið meiri!

"„Sala á rafmagnspottum hefur aldrei verið meiri og Queen er mest seldi potturinn hjá okkur á þessu ári.  Hann hefur slegið í gegn og er potturinn íslensk hönnun frá A-Ö,“ segir Kristján." - Ragna Gestsdóttir, DV (2023).

Full frétt (dv.is)

2023 - Heiti potturinn bjargaði geð­heilsunni og sam­einaði fjölskylduna

"„Það er mikil streita í samfélaginu núna og fólk að glíma við allskonar áhyggjur og lífsstílstengda sjúkdóma. Ég er sjálfur að glíma við kulnun og þurfti að leita mér sálfræðiaðstoðar. Það hefur hjálpað mér mikið að gera meira af því sem mér finnst skemmtilegt, eins og að fara í pottinn í lok dags og slaka á. Kvöldstund í pottinum er ódýrasta sálfræðimeðferðin,“ bætir hann sposkur við.

Hann segir heita pottinn einnig hafa góð áhrif á fjölskyldulífið." - Vísir (2023).

Full frétt (visir.is)

2022 - „Íslendingar eru algjörir bruðlarar“

"Nú þegar kuldakast ríður yfir landið og sundlaugum hefur verið lokað til að spara heitt vatn hefur umræða um notkun heitra potta á heimilum sprottið upp á samfélagsmiðlum. Fiskikóngurinn og einn helsti pottasölumaður landsins, Kristján Berg Ásgeirsson segir Íslendinga gjarnan bruðla með heitt vatn. Mörg tonn af vatni fari í notkun á hitaveitupottum.

Árið í fyrra var metsöluár hjá Kristjáni en hann segir mikinn meirihluta heitra potta á Íslandi vera hitaveitupotta. Sjálfur selji hann helst rafmagnspotta sem séu ódýrari í rekstri en hitaveitupottar. Þar að auki noti þeir mikið minna vatn." - Ellen Geirsdóttir, Vísir (2022).

Full frétt (visir.is)

2022 - Lagerhreinsun hjá heitirpottar.is

"„Það er dúndurlagersala í gangi hjá okkur á heitum pottum. Við erum að rýma fyrir nýjum vörum og viljum hefja vorið með hvelli! Ekki veitir af, það eru allir orðnir partýþyrstir og vilja græja pallinn og garðinn fyrir sumarið,“ segir Kristján Berg, eigandi Heitir pottar.is og lofar því að hægt sé að gera frábær kaup á lagersölunni." - Vísir (2022).

Full frétt (vísir.is)

2021 - Einn heitur pottur á hverja 500 Íslendinga

"Heit­irpott­ar.is hef­ur verið val­inn potta­sali árs­ins þriðja árið í röð hjá Arctic Spas alþjóðlega pottafram­leiðand­an­um. Að sögn Kristjáns Berg Ásgeirs­son­ar, eig­anda Heitra potta, hef­ur eng­inn ann­ar hlotið titil­inn tvö ár í röð hjá fram­leiðand­an­um en 190 söluaðilar kepp­ast um titil­inn ár hvert." - Kristinn Magnússon, Morgunblaðið (2021).

Full frétt (mbl.is)

2021 - Metár hjá Heitum pottum

"Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Fiskikóngsins, segir stefna í metár í sölu á heitum pottum, en salan hefur aukist um 20% frá því í fyrra." - Jóhann Óskar Jóhannsson, Viðskiptablaðið (2021).

Full frétt (vb.is)

2021 - Fólk sem á heitan pott kann að skemmta sér

"„Það er lykilatriði að hafa gaman í lífinu og fólk sem kann að skemmta sér, það á heitan pott í garðinum,“ segir Kristján Berg en hann og eiginkona hans, Sólveig Lilja, opnuðu glæsilega verslun með heita potta, sundlaugar og saunaklefa að Fosshálsi 13 um liðna helgi." - Vísir (2021).

Full frétt (visir.is)

2019 - Selur 600 heita potta á ári

"Ameríski húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, eða 18 metrar að lengd. Kristján Berg Ásgeirsson er með 250 potta á lager." - Árni Sæberg, Morgunblaðið (2019).

Full frétt (mbl.is)

2017 - Meiri sala heitra potta en fyrir hrun

"Kristján Berg Ásgeirsson eigandi fyrirtækisins Heitirpottar.is segir að þjóðin hafi haldið að sér höndum meðan komist var yfir stóra hjallan eftir hrunið, en nú fjárfesti þjóðin í vellíðan. „Fyrsta maí átti ég 350 potta á lager og hef aldrei átt jafn mikið og þá,“ segir Kristján. „Ég á tuttugu potta eftir núna og sumarið er ekki hálfnað. Þetta átti að duga mér til áramóta.“ - Viðskiptablaðið (2017).

Full frétt (vb.is)