Klórduft, Notkun:
1. Fyllið pottinn af vatni (ef rafmagnspottur; í gegnum síuhólf).
2. Hitið vatnið upp í a.m.k. 30°C.
3. Mælið hæfilegt magn af klórdufti miðað við pottastærð (lítrar) og notkun á pottinum.
4. Dreifið klórduftinu jafnt yfir pottinn/vatnið.
5. Myndið hreyfingu í vatnið fyrir hraðari uppleysingu og betri dreifingu á klórnum.
Ath! það má ekki nota klór og bróm saman.
Umsjón rafmagnspotta með klór:
- Skiptið um vatn á 2-3 mánaða fresti.
- Endurnýið síur reglulega (flestar endast 3-4 mán.). Síur vörusíða
- Athugið „Total Alkalinity" vikulega til að tryggja að hún sé innan markagildanna (80-120).
- Stillið pH-gildið (sýrustigið á vatninu) einu sinni í viku.
Nota skal: TEST STRIMLAR til að athuga: Klórgildi, „Total Alkalinity" og pH-gildi vatnsins.
Klór hefur tilhneigingu til að lækka pH-gildið, reyna að ná fram pH-gildi á bilinu 7,2-7,6.
Nota skal: PH-PLÚS til að hækka pH-gildin.
- „Hressið” vatnið einu sinni í viku. (mikilvægt)
Nota skal: POTTAHRESSIR