Skilmálar fyrir kaup og ábyrgð á vörum
Gildir frá: 12. ágúst 2026.
1. Almenn atriði
Þessir skilmálar gilda um öll kaup á vörum hjá Heitirpottar.is, hvort sem verslað er á heimasíðunni heitirpottar.is eða í verslun. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála í heild.
Seljandi:
-
Heitir Pottar ehf.
-
Kennitala: 561220-1230
-
Heimilisfang: Fosshálsi 13, 110 Reykjavík
-
Sími: 547-8880
-
Netfang: heitirpottar@heitirpottar.is
2. Pöntun og kaupsamningur
Pöntun telst bindandi kaupsamningur þegar kaupandi hefur staðfest hana og greiðsla hefur verið móttekin eða samþykkt, eftir því sem við á. Kaupandi fær staðfestingu á pöntun senda á uppgefið netfang.
Athugið: Innborgun sem greidd er vegna pöntunar eða tilboðs er bindandi og ekki endurgreiðanleg, þar sem hún felur í sér staðfestingu á kaupum og setur pöntunina í framleiðslu eða frátekt. Þetta gildir með fyrirvara um lögbundinn afpöntunarrétt skv. kafla 5.
Öll verð á heitirpottar.is eru í íslenskum krónum og innifela virðisaukaskatt nema annað sé sérstaklega tekið fram. Seljandi áskilur sér rétt til að leiðrétta bersýnilegar verð- eða innsláttarvillur, jafnvel eftir að pöntun hefur verið staðfest, og til að breyta verðum án fyrirvara. Ef vara er uppseld eða ófáanleg eftir að pöntun berst er kaupanda tilkynnt um það og pöntun þá annaðhvort breytt í samráði við kaupanda eða felld niður og greiðsla endurgreidd að fullu.
3. Greiðsla
Greiða má með þeim greiðslumátum sem í boði eru á hverjum tíma, t.d. greiðslukorti, millifærslu eða öðrum leiðum sem tilgreindar eru við frágang pöntunar. Við sérpantanir og stærri kaup, s.s. á heitum pottum eða saunaklefa, áskilur seljandi sér rétt til að krefjast staðfestingargjalds eða fyrirframgreiðslu áður en pöntun er send í framleiðslu.
3.1 Fullgreiðsla og restgreiðsla
Vöru skal fullgreiða áður en hún er afhent kaupanda, sbr. kafla 4. Kaupanda er frjálst að standa skil á fullnaðargreiðslu, með þeim greiðslumáta sem honum hentar á hverjum tíma, þ.m.t. með millifærslu, kredit- eða debetkorti, reiðufé, eða með því að gera raðgreiðslusamning hjá viðurkenndum lánveitanda. Slíkur raðgreiðslusamningur telst jafngilda fullnaðargreiðslu eða restgreiðslu gagnvart Heitirpottar.is. Framangreint gildir nema um annað hafi verið sérstaklega samið milli aðila við pöntun.
4. Afhending
Afhendingartími er áætlaður og getur verið breytilegur, sérstaklega á vörum sem eru sérpantaðar eða fluttar inn erlendis frá, t.d. heitum pottum frá Arctic Spas sem framleiddir eru sérstaklega fyrir hverja pöntun eða sérsmíðuð sauna. Seljandi upplýsir kaupanda um áætlaðan afhendingartíma við pöntun og tilkynnir ef tafir verða.
Áhætta af vörunni flyst til kaupanda við afhendingu.
Engin vara er afhent nema hún sé að fullu greidd. Kaupandi ber jafnframt ábyrgð á að sækja eða taka við vöru innan eðlilegs tímaramma frá þeim afhendingartíma sem gefinn var upp við pöntun.
Sé vara ekki sótt innan 30 daga frá umsömdum afhendingartíma áskilur Heitirpottar.is sér rétt til að hefja innheimta geymslugjald sem nemur 2.000 kr. á dag, eigi það við um stórar vörur sem taka mikið lagerpláss, s.s. heita potta eða saunur. Hafi vara ekki verið sótt innan 30 daga frá áætluðum afhendingartíma áskilur Heitirpottar.is sér rétt til að endurselja hana. Í því tilviki þarf upprunalegur kaupandi að bíða eftir næstu sendingu, sem getur tekið allt að 6 mánuði.
Við móttöku vöru ber kaupanda að ganga úr skugga um að hún sé í fullnægjandi ástandi og að allir hlutir sem tilheyra pöntuninni hafi fylgt með. Komi í ljós tjón eða galli á vörunni við móttöku skal kaupandi tilkynna það starfsfólki Heitirpottar.is án ástæðulausrar tafar. Hið sama gildir reynist vöru vanta í sendingu eða hafi röng vara verið afhent. Hafi engin athugasemd borist innan 10 daga frá afhendingu er lagt til grundvallar að varan hafi verið afhent í samræmi við pöntun og án tjóns eða galla sem greina hefði mátt við eðlilega skoðun við móttöku.
5. Skilaréttur og afpöntun
Við kaup á heimasíðu www.heitirpottar.is nýtur neytandi 14 daga afpöntunarréttar skv. lögum um neytendasamninga nr. 16/2016. Fresturinn hefst þegar kaupandi eða þriðji aðili á hans vegum tekur við vörunni.
Til að nýta afpöntunarrétt skal kaupandi tilkynna seljanda skriflega, t.d. í tölvupósti, innan frestsins. Ekki þarf að tilgreina ástæðu. Vöru skal skila í sínu upphaflega ástandi og í upprunalegum umbúðum. Beinn kostnaður við að skila vöru er á ábyrgð kaupanda nema seljandi hafi tekið annað fram.
Þegar seljandi hefur móttekið tilkynningu um afpöntun, eða staðfestingu á að varan hafi verið send til baka, endurgreiðir seljandi kaupanda allar greiðslur sem inntar hafa verið af hendi.
Afpöntunarréttur á ekki við um vörur sem eru sérsniðnar eða framleiddar samkvæmt sérstökum óskum neytanda, t.d. þegar litur, áklæði eða aukabúnaður á heitum potti er valinn sérstaklega fyrir viðkomandi pöntun, sbr. undanþágu í 16. gr. laga nr. 16/2016. Þetta á við um margar Arctic Spas pantanir — hafið samband við okkur ef óvissa er um tiltekna vöru.
Afpöntunarréttur skv. þessum kafla gildir ekki um gallaðar vörur eða útsöluvörur. Til gallaðra vara í þessum skilningi teljast vörur með framleiðslugalla, tjónaðar vörur, B-vörur og notaðar vörur, þar á meðal sýningareintök sem falla undir notaðar vörur. Slíkar vörur eru boðnar til sölu í því ástandi sem lýst er hverju sinni og telst kaup á þeim fela í sér staðfestingu kaupanda á að hann hafi kynnt sér ástand vörunnar og þann afslátt sem veittur er af þeim sökum.
6. Ábyrgð á vörum
6.1 Lögbundin ábyrgð
Auk verksmiðjuábyrgðar framleiðanda nýtur kaupandi lögbundinnar réttarverndar vegna galla skv. lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Almennur kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu. Kvörtun vegna galla skal berast innan sanngjarns tíma eftir að hans varð eða mátti verða vart.
6.2 Verksmiðjuábyrgð Arctic Spas
Á heitum pottum frá Arctic Spas gildir að auki verksmiðjuábyrgð framleiðanda til upprunalegs kaupanda frá afhendingardegi. Helstu atriði ábyrgðarinnar eru:
-
Skel og vatnsþétting: Ábyrgð gegn vatnstapi vegna galla í burðarvirki gildir svo lengi sem upprunalegur eigandi á pottinn (Custom og Classic línur). Á Core línu gildir 7 ára ábyrgð á skel.
-
Utanklæðning: 10 ára ábyrgð gegn efnis- og framleiðslugöllum. Litabreytingar eða veðrun á yfirborði falla utan ábyrgðar.
-
Rafbúnaður (dælur, hitakerfi, stjórnbúnaður, ósonkerfi frá verksmiðju): 3 ára ábyrgð sem nær bæði til varahluta og vinnu við viðgerð.
-
Onzen-hreinsikerfi sett í eftir á (retrofit): 2 ára ábyrgð á varahlutum, vinna ekki innifalin.
Nákvæm skilyrði og undantekningar ábyrgðarinnar fara eftir opinberum ábyrgðarskilmálum Arctic Spas fyrir viðkomandi línu (Custom, Classic eða Core) sem fylgja hverjum potti og eru aðgengilegir á arcticspas.com. Heitirpottar.is annast framkvæmd ábyrgðarmála fyrir hönd Arctic Spas á Íslandi.
6.3 Ábyrgð á saunaklefum
Á saunum sem seldar eru hjá Heitirpottar.is gildir 2 ára ábyrgð á rafbúnaði saununnar, þ.m.t. saunaofni og stjórnbúnaði, gegn göllum í efni eða framleiðslu.
Ábyrgðin nær ekki til byggingar klefans sjálfs, s.s. hurðar, þaks, veggjaklæðningar eða flísalagningar. Slíkir byggingarhlutir eru þó ávallt tryggðir gegn augljósum framleiðslugöllum og/eða skemmdum sem geta orðið til í flutningi til kaupanda, í samræmi við lögbundna ábyrgð skv. kafla 6.1.
6.4 Það sem fellur utan ábyrgðar
Ábyrgð nær ekki til skemmda sem verða vegna:
-
Rangrar uppsetningar, viðhalds eða notkunar sem er í ósamræmi við leiðbeiningar framleiðanda.
-
Rangrar vatnsefnafræði eða vanrækts viðhalds á vatni.
-
Frostskemmda af völdum ófullnægjandi vetrarlokunar eða straumleysis.
-
Flutnings eftir afhendingu, óviðkomandi viðgerða eða breytinga á búnaði.
-
Eðlilegs slits á slithlutum, s.s. síum, þéttum, ljósaperum og lokum.
-
Ytri atvika, s.s. eldingar, óveðurs eða annars utanaðkomandi tjóns.
6.5 Ábyrgð flyst ekki milli eigenda
Ábyrgð skv. þessum kafla gildir eingöngu gagnvart upprunalegum kaupanda vörunnar. Eigi sér stað eigendaskipti á heitum potti eða saunu, hvort sem er með sölu, gjöf eða á annan hátt, flyst ábyrgðin ekki sjálfkrafa til nýs eiganda, nema Heitirpottar.is eða framleiðandi hafi sérstaklega samþykkt annað skriflega.
6.6 Málsmeðferð vegna ábyrgðarkvartana
Kaupandi sem vill nýta rétt sinn skv. ábyrgð skal hafa samband skriflega við Heitirpottar.is með lýsingu á vandamáli, myndum ef við á, og upplýsingum um kaupin (pöntunarnúmer eða reikningsnúmer). Heitirpottar.is metur málið og ákveður, á grundvelli eðlis og umfangs viðgerðar, með hvaða hætti úrbót verði veitt. Úrlausn ábyrgðarmála fer að jafnaði fram með einum af eftirfarandi þremur leiðum, að vali Heitirpottar.is:
-
Viðgerð á verkstæði: Kaupandi kemur vörunni til Heitirpottar.is á verkstæði félagsins að Fosshálsi 13, 110 Reykjavík, þar sem viðgerð fer fram.
-
Viðgerð á starfsstöð kaupanda: Starfsmaður Heitirpottar.is kemur til kaupanda og annast viðgerð á staðnum. Kostnaður vegna slíkrar þjónustu heim til kaupanda fylgir gildandi verðskrá Heitirpottar.is á hverjum tíma, sem aðgengileg er á heitirpottar.is, og er kaupanda bent á að kynna sér hana.
-
Afhending varahlutar: Heitirpottar.is útvegar kaupanda viðeigandi varahlut þannig að kaupandi geti sjálfur annast viðgerð. Nýr varahlutur er ekki afhentur fyrr en hinn bilaði varahlutur hefur verið skilað til Heitirpottar.is.
7. Uppsetning og notkun
Mælt er með því að heitir pottar séu tengdir af löggiltum rafvirkja í samræmi við íslenskar reglugerðir og leiðbeiningar framleiðanda. Sé pottur ekki settur upp, tengdur eða viðhaldið í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda getur það valdið því að ábyrgð falli niður að hluta eða öllu leyti.
Kaupanda, og þeim uppsetningaraðila sem kaupandi felur uppsetningu, s.s. löggiltum rafvirkja og pípara, ber skylda til að kynna sér vöruna og notendahandbók (manual) framleiðanda og tryggja að uppsetning fari fram í fullu samræmi við leiðbeiningar og fyrirmæli framleiðanda.
Allar upplýsingar sem Heitirpottar.is lætur í té til stuðnings uppsetningu, viðhald og notkun, hvort sem er í formi bæklinga, myndbanda eða annars leiðbeiningarefnis sem félagið hefur sjálft útbúið, eru einungis veittar til aðstoðar við ferlið og teljast ekki til opinberra eða staðlaðra leiðbeininga framleiðanda. Slíkt efni kemur hvorki í stað notendahandbókar né annarra opinberra leiðbeininga framleiðanda.
Leiki vafi á um rétta framkvæmd uppsetningar, viðhalds og/eða notkunar ber kaupanda að hafa samband við Heitirpottar.is án tafar, til að fá frekari aðstoð, upplýsingar eða til að bóka þjónustu hjá félaginu.
8. Takmörkun ábyrgðar
Seljandi ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, s.s. rekstrartjóni eða afleiddu tjóni, umfram það sem leiðir af ófrávíkjanlegum ákvæðum laga um neytendakaup. Ábyrgð seljanda takmarkast við verð vörunnar nema um ásetning eða stórfellt gáleysi sé að ræða.
9. Ágreiningur og lagaskil
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem aðilar ná ekki samkomulagi um getur neytandi lagt málið fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (kvth.is) eða eftir atvikum leitað til Neytendastofu (neytendastofa.is).
10. Breytingar á skilmálum
Seljandi áskilur sér rétt til að uppfæra þessa skilmála. Skilmálar sem gilda við hverja pöntun eru þeir sem birtir eru á heitirpottar.is á þeim tíma sem pöntun er gerð.
Spurningar um skilmála, kaup eða ábyrgð má senda á netfang Heitirpottar.is eða hringja í síma verslunar.
