Lagnahreinsir - Árleg þrif
Mjög sterk efnablanda. Nota einu sinni á ári.
Framleitt sérstaklega fyrir þrif á lögnum/leiðslum/pípum í nuddpottum.
Gott er að hreinsa rörakerfið í pottinum reglulega til að koma í veg fyrir vöxt á bakteríum sem geta myndast í rörunum. Best er að nota Lagnahreinsir allavega einu sinni á ári.
Lagnahreinsir er notaður áður en vatnsskipti fara fram. 0,5L af Lagnahreinsi fyrir hverja 1000L af vatni.
Best er að hafa vatnið heitt 35-38 gráður og síur eru fjarlægðar úr pottinum áður en Lagnahreinsir er notaður.
Kveikið á öllum dælum og látið þær ganga á hæðstu stillingu allavega í 30 mínútur.
Óhreint vatnið er þá tæmt úr pottinum og skolað vel á eftir með vatnsslöngu.
Kassi, Magntilboð: Borgar fyrir 5, færð 6.
Deila / Vista á samfélagsmiðla
Upplýsingar um vöru
1. Potturinn skal vera fullur af vatni (má vera gamalt vatn).
2. Takið síur úr pottinum.
3. Mælið hæfilegt magn af Lagnahreinsi (0,5 ltr. á móti hverja 1.000 ltr.) SKAMMTAHLUTFALL: 2000:1
4. Dreifið Lagnahreinsinum jafnt yfir vatnið/pottinn.
5. Fáið stöðuga hringrás á vatnið í u.þ.b. 2-3 klst.
6. Tæmið pottinn.
7. (Aukaskref): Mælt er með því að fylla pott af vatni og tæma aftur, til að tryggja að allt efnið sé farið úr pottinum.
1. Þrif á skel: Notið bursta/svamp og efni sem drepur húðfitu/olíur.
Mælum með: Fitueyðir og Vikan Bursti.
2. Þrif á pappasíu: Ath! ALLS EKKI setja síur í uppþvottavél!
- Skolið pappasíu með vatni vikulega.
- Þrífið mánaðarlega með efni.
Gott efni fyrir þrif á pappasíum: Aquamagic.
3. Þrif/vernd á klæðningu/pottaloki: Berið efni á klæðningu og pottalok með rökum klút.
Nota skal: Bón á Pottaloki.