HUUM DROP
DROP rafmagnssaunaofninn sækir innblástur í hreinasta frumefni náttúrunnar – vatnsdropann. Straumlínulöguð og ávöl hönnunin setur glæsilegan svip á hvaða saunaklefa sem er.
Árið 2015 hlaut DROP hin virtu Red Dot hönnunarverðlaun. Auk útlitsins býr DROP ofninn yfir fjölda framúrskarandi eiginleika.
Þótt ofninn sé nettur tekur þessi veggfesti ofn allt að 55 kg af saunasteinum, sem er meira en flestir viðarkyntir ofnar taka. Hann gefur mjúka og langvarandi gufu og er með endingargóðum hlutum úr ryðfríu stáli. Með framúrskarandi eiginleikum og glæsilegu útliti er DROP saunaofninn ómissandi fyrir alla saunaunnendur.
Við mælum eindregið með verndarhlíf í saunaklefann – annaðhvort sérsmíðaðri frá smiðnum þínum eða HUUM verndarhlífinni – fyrir aukið öryggi og þægindi.
Stærð saunaklefa
- DROP 4 (4,5 kW): 3–7 m³
- DROP 6 (6 kW): 5–9 m³
- DROP 7 (7,5 kW): 7–11 m³
- DROP 9 (9 kW): 8–13 m³
Þú getur notað reiknivél HUUM til að reikna út hvaða styrkleiki hentar saunaklefanum þínum.
Í settinu er
- Rafmagnssaunaofn
- Veggfesting
- Með 9 kW DROP fylgir hitabeinir (heat diverter)
Ofninn þarf auk þess
- UKU stýrikerfi fyrir saunu
- 55 kg af saunasteinum, 5–10 cm í þvermál
- Hitaþolinn rafmagnskapal
Hönnunarmöguleikar
Hægt er að fella DROP ofninn niður í saunabekkinn. Þegar ofninn er felldur inn þurfa að minnsta kosti 375 mm af ofninum að standa upp úr bekknum. Innfellingarkragi fyrir DROP hylur skornar brúnir opsins og dropabakkinn fyrir DROP heldur saunaklefanum hreinum og þurrum.
Varahlutir
Ef skipta þarf um hitaelement fást element fyrir DROP hjá okkur.
Mál (B/D/H): 390/335/590 mm
Þyngd: 11 kg (DROP 9: 12 kg)
Steinamagn: 55 kg
