HUUM UKU WiFi Classic Black HUUM UKU WiFi Classic Black
HUUM UKU stýrikerfi HUUM UKU stýrikerfi
HUUM UKU stýrikerfi HUUM UKU stýrikerfi
HUUM UKU stýrikerfi HUUM UKU stýrikerfi
HUUM UKU stýrikerfi HUUM UKU stýrikerfi

HUUM UKU stýrikerfi

120,200 ISK
Tenging: WiFi
Stjórnborð: Classic Black

UKU er snjallt stýrikerfi frá HUUM fyrir rafmagnssaunaofna allt að 18 kW. Stílhrein og einföld hönnun, auðvelt í notkun, með öryggi og stjórn í fyrirrúmi. Framleitt í Eistlandi.

UKU WiFi

UKU WiFi stýrikerfið hentar vel fyrir saunur þar sem WiFi-samband er til staðar, t.d. á heimilum, skrifstofum eða í gistiaðstöðu. Þú getur hitað saununa með stjórnborðinu á staðnum eða úr símanum, hvar sem þú ert.

Með HUUM appinu stillir þú auðveldlega upphafs- og lokatíma hitunar og óskhitastig, og sérð núverandi hitastig í saununni. Þú færð líka tilkynningu þegar saunan er orðin heit og tilbúin.

UKU Local

UKU Local stýrikerfið er fullkomið ef þú vilt hita saununa á staðnum eða ert ekki með nettengingu. Með stílhreinu stjórnborði á veggnum stillir þú auðveldlega hitastig, hitunartíma og fleira. Ef þú skiptir um skoðun og vilt stjórna saununni úr appinu er einfalt að bæta WiFi-möguleika við síðar.

Hægt er að tengja lýsingu, loftræstingu og gufutæki saununnar við stýrikerfið. Yfirhitavörn og barnalæsing tryggja öryggi saununnar.

Tæknilýsing

  • Fyrir ofna allt að 18 kW
  • Hitastig: 40–110 °C
  • Rafmagn: 3/N~400 V | 1/N~230 V
  • Hitunartími: 1, 3, 6, 12 eða 18 klst.
  • Stjórnun: WiFi – stjórnborð og snjallsími; Local – eingöngu frá stjórnborði

Í UKU 4.2 settinu er

  • CLASSIC stjórnborð (í útgáfum með Classic Black stjórnborði)
  • Hitaþolinn kapall, þolir allt að 205 °C
  • Aðaleining (main module)
  • Öryggisnemi
  • Bekkjarnemi
  • 2 × nemahús
  • Hurðarnemasett

Útgáfan með Glass Black stjórnborði kemur með GLASS stjórnborði. Útgáfur „án stjórnborðs“ þarfnast sérstaks stjórnborðs (GLASS, CLASSIC eða WOOD), sem fást sér.

Tenging: WiFi
Stjórnborð: Classic Black