Balboa ControlMySpa - WiFi búnaður
Stjórnaðu pottinum hvar og hvenær sem er
ControlMySpa™ appið gjörbreytir umsjón með heitum potti og gerir þér kleift að stjórna pottinum þínum á einfaldan hátt úr hvaða snjallsíma eða spjaldtölvu sem er. Í þessu notendavæna appi stillirðu hitastigið, stjórnar lýsingunni og tímasetur hreinsunarlotur án fyrirhafnar. Þú færð strax tilkynningar í símann ef eitthvað gæti verið að, svo potturinn haldist alltaf í toppstandi, jafnvel þegar þú ert ekki heima. Njóttu þæginda sérsniðinna stillinga og rauntímavöktunar, allt innan seilingar.
Helstu eiginleikar
Fjaraðgangur
Þú stjórnar heita pottinum á auðveldan hátt hvar og hvenær sem er úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Með einföldum aðgerðum stillirðu hitastigið, keyrir dælurnar og lagar lýsinguna að þínum smekk, allt úr tækinu þínu í mestu makindum. Með þessum hnökralausa fjaraðgangi færðu persónulega og afslappandi pottaupplifun innan seilingar.
Ítarleg tímastilling og sérstillingar
Þú getur tímastillt pottinn svo hann sé tilbúinn á ákveðnum tímum, með rétta hitastigið og stillingarnar þegar þú þarft á þeim að halda. Þetta eykur ekki aðeins þægindin heldur sparar líka orku, því notkunin verður hagkvæmari.
Pottalæsing
Vertu áhyggjulaus þótt þú sért að heiman, því með pottalæsingunni kemurðu í veg fyrir að potturinn sé notaður í leyfisleysi eða að hitastiginu sé breytt. Þú getur læst pottinum með fjaraðgangi, sama hvar þú ert. Á meðan potturinn er læstur halda allar sjálfvirkar aðgerðir áfram að virka eðlilega, svo hann helst í fullkomnu standi og er tilbúinn um leið og þú kemur heim.
Einföld uppsetning
Það er einfalt að setja upp fjaraðgang að pottinum, því hann tengist beint við routerinn þinn og tengingin verður bæði áreiðanleg og örugg. Þú fylgir einföldum leiðbeiningum skref fyrir skref og getur á skömmum tíma læst pottinum, breytt stillingum og stjórnað aðgerðum hans úr fjarlægð. Þannig hefurðu fulla stjórn, sama hvar þú ert.
