HUUM HIVE Flow viðarkyntur saunaofn HUUM HIVE Flow viðarkyntur saunaofn
HUUM HIVE Flow, hlið HUUM HIVE Flow, hlið
Glerhurð á HUUM HIVE Flow Glerhurð á HUUM HIVE Flow
Handfang á HUUM HIVE Flow Handfang á HUUM HIVE Flow
HUUM HIVE Flow LS, hlið HUUM HIVE Flow LS, hlið
HUUM HIVE Flow viðarkynntur saunaofn í notkun HUUM HIVE Flow viðarkynntur saunaofn í notkun
HUUM HIVE Flow Mini viðarkynntur saunaofn í notkun HUUM HIVE Flow Mini viðarkynntur saunaofn í notkun

HUUM HIVE Flow

281,500 ISK
Gerð: HIVE Flow Mini (8,5 kW)

HIVE Flow viðarkyntur saunaofn er einn sá hagkvæmasti og umhverfisvænsti á markaðnum. Hönnunin tryggir að um 75% hitans frá eldiviðnum fer beint í að hita saununa í stað þess að fara út um skorsteininn. Mikið steinamagn heldur hitanum og gefur gufu í meira en 30 mínútur eftir að eldurinn slokknar.

CO-útblástur er aðeins 346 mg/m³, samanborið við yfir 1000 mg/m³ í sambærilegum ofnum, og svifryk aðeins 25 mg/m³. Ofninn er sterkbyggður, með 5 mm þykkum toppi og 3 mm hliðum sem dreifa hitanum jafnt. Stór glerhurð gefur notalega stemningu.

HIVE Flow tekur um 150 kg af steinum og HIVE Flow Mini um 105 kg. Með steinabúri má bæta 35–40 kg við. LS útgáfurnar (lengri eldhólf) eru kyntar úr aðliggjandi rými, í gegnum vegg.

Við mælum eindregið með verndarhlíf í saunaklefann fyrir aukið öryggi og þægindi.

Stærð saunaklefa

  • HIVE Flow Mini / Mini LS (8,5 kW): 6–14 m³
  • HIVE Flow / Flow LS (9,8 kW): 8–18 m³

Í settinu er

  • Viðarkyntur saunaofn
  • Rist og öskurist
  • Öskuskúffa
  • Tvær hreinsilúgur
  • Tvær festiplötur
  • Hitaþolinn hanski
  • Uppsetningar- og notkunarleiðbeiningar

Ofninn þarf auk þess

  • Saunasteina, 5–10 cm í þvermál: 105 kg í Flow Mini og 150 kg í Flow
  • Tengingu við skorstein (Ø 114 mm)

Aukahlutir

Tæknilýsing

  • Eldiviðarlengd: 300 mm
  • Öryggisfjarlægðir: A 150 mm, B 500 mm, C 750 mm (Flow Mini) / 826 mm (Flow)
  • Þyngd: Flow Mini 54 kg, Flow Mini LS 59 kg, Flow 67 kg, Flow LS 73 kg

Mál (B/D/H): Flow Mini 450/493/884 mm, Flow Mini LS 450/613/884 mm, Flow 526/586/884 mm, Flow LS 526/706/884 mm

Gerð: HIVE Flow Mini (8,5 kW)