Arctic Spas
Just Blue 2L
Að sækja er í boði frá Fossháls 13
Vanalega tilbúið innan 1 klst.
Frábær viðbót fyrir saltvatnspotta. Hjálpar saltkerfinu að hreinsa vatnið betur og kemur í veg fyrir að það verði útfellingar á saltsellunni. Lengir endingartímann á saltsellunni. Þarf einungis að nota einu sinni í mánuði.
Just Blue er umhverfisvænt vatnsumhirðukerfi og mun hjálpa þér við að halda vatninu í pottinum þínum hreinu á öruggan, einfaldan og áhrifaríkan hátt. Með vikulegri meðferð fyrir klórpotta eða mánaðarlegri meðferð fyrir Onzen/Spaboy potta mun Just Blue hjálpa þér að koma í veg fyrir kalkútfellingar í pottinum. Þar að auki mun Just Blue losa og fjarlægja núverandi kalkútfellingar. Það er í þessum kalkútfellingum sem bakteríur og aðrar örverur vaxa. Onzen/Spaboy mun sjá um afganginn, eyða og sótthreinsa vatnið. Vatnið í pottinum verður ekki aðeins hreint heldur lítur það út fyrir að vera kristaltært og verður notalegt og mjúkt. Just Blue er líka pH-stuðpúði sem hjálpar til við að halda pH gildinu stöðugu og skilur eftir sig kísillíka húð til að koma í veg fyrir uppsöfnun kalsíums á Onzen/Spaboy rafskautum, hiturum osfrv.
Notkunarleiðbeiningar:
Fyrir potta með Onzen/Spaboy saltvatnskerfi skaltu bæta við Just Blue mánaðarlega.
Fyrir pottar með hefðbundnu klórkerfi skaltu bæta við Just Blue vikulega.
Hristið Just Blue vel fyrir notkun. Bættu Just Blue við vatnið í pottinum og kveiktu á dælunum í allavega 2 mínútur til að dreifa vatninu.
Magn: 80ml fyrir litla potta, 100ml fyrir millistærð, 130ml fyrir stóra potta, 500ml fyrir Sundlaugarpotta.
Deila / Vista á samfélagsmiðla